Mánudagur, 8. maí 2006
Oft er það hið fáranlega sem skilar hinu ljúfa
Það má með sanni segja að margt getur gerst í lífi sem þessu. Ölið heldur þó alltaf grundvelli réttvísinar og aldrei verða slíkar veigar vanmetnar.
Já Formaður G kann margt fyrir sér, hann í raun dansar í gegnum lífið sem og í gegnum handknattleikinn.
Talandi um dans, þá sá ég mann í góða veðrinu í gær, hann var að leika golf á golfvelli einum í grennd við Hafnarfjörð, ég kallaði til hans úr líklega 100m fjarlægð "hey þú ert lélegur í golfi!, hvað þykistu vera að gera?!?kanski reyna vera Tiger Woods?!?" hann svaraði mér ekki en ég sá að hann leit lengi til mín, klæddi sig úr að ofan og steig dans, einhvern vegin notaði hann driverinn sem hann var með til þess að stiðja við sig síðan kastaði hann pútternum hátt í loft upp og greip hann með kjaftinum eins hann væri rómantískur maður með rós í kjaft fyrir konu.
Ég vissi innra með mér að þessi maður væri líklega vanheill og ég gekk burt en þó hugsi um framtíðina og hvað lífið í raun getur verið óútreiknanlegt, sérstaklega fyrir menn slaka í stærfræði.
Ég hef þetta ekki mikið lengra, óska ykkur betra lífs og bið ykkur vel að lifa, því maður veit aldrei hvað gerist næst, haldið þó ró ykkar Ölið er á sínum stað.
Kveðja. Formaður B í stuttbuxum og með rautt hár.
Athugasemdir
vissi það , gísli er dansari við konunglega ballettinn i köben , vissi það
en annars til hamigju með sigrana
matthias arni ingimarsson, 9.5.2006 kl. 14:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.